www.ulfur.com - Úlfur Stígsson

Heimasíða Úlfs Stígssonar á netinu, uppfærð reglulega.

Blogg

Velkomin á heimasíðu Úlfs Stígssonar, sonar Stígs Þórhallssonar og Elvu Rósar Hauksdóttur.

25.1.2007

123.is/stigsborn

Allir að fara inn á

www.123.is/stigsborn/

Það er nýja síðan okkar !

Skrifað 25.1.2007 kl. 15:39 af Stígur

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.12.2006

Jólablogg

Jæja jólin eru komin og farin, og allt leið þetta eins og 1 sekúnda.
Skoða myndir hérna

Þetta voru yndisleg jól og fengum við dýrindismat: hvítlaukssteiktur humar í forrétt án steinselju (elva gleymdi að setja), léttreyktur lambahryggur og svo átti að vera eftirréttur en við vorum of södd :)
Mynd númer 10

Úlfur

Úlfur fékk margar fínar gjafir svo sem: flotta leikfangaflugvél, teikniborð, CD spilara og vísnadisk, hraðbát í baðið, föt, plastfisk sem borðar 2 aðra plastfiska, flottar húfur, DVD, púsluspil og svo fullt af bókum.
Mynd númer 6 Mynd númer 13
Úlfur borðaði nokkuð vel af matnum, en vildi ekki sjá humarinn. Hann vildi þó alveg sjá nammið sem lá á borðum. Hann var rosalega ánægður með allt saman og þökkum við fyrir frábærar gjafir.

Rán
Rán fékk fínar gjafir líka: æðisleg snúlluföt, mikið af leikföngum og bókum, hún hafði þó mestan áhuga á pakkningunum og þá helst böndunum utan um pakkana. Þökkum fyrir góðar og nytsamlegar gjafir.
Mynd númer 14

Stígur pabbi
Stígur fékk bestu pakkana frá sjálfum sér, eini maðurinn sem kaupir pakka handa sjálfum sér, pakkar honum inn og skrifar á miðann frá öðrum.
Fékk: DVD, leikjatölvu, leik í tölvuna, föt og ýmislegt.
Mynd númer 28

Elva mamma
Mamma fékk fína pakka: diska í stellið, rándýra hnífa, dúk á borðið og trivial pursuit spilið.
Mynd númer 32

Skrifað 26.12.2006 kl. 15:55 af Stíg

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

24.11.2006

2 ára ofurgutti

Úlfur orðinn 2 ára gaur, hann dafnar vel og það hefur gengið mjög vel með hann að flestu leiti. Við héldum barnaafmæli fyrir strákinn síðustu helgi og gekk það mjög vel (sjá myndir í myndaalbúm), hann er nánast altalandi núna - les heilu bækurnar fyrir mig (ekki textann, veit bara hvað þær eru um).

Honum gengur rosalega vel á leikskólanum og hefur eignast marga góða vini þar. Hef heyrt að hann sé viljasterkur og hafi nokkrum sinnum þurft að fara í óþekktarhornið :)

Úlfur kann vel við litlu systur sína Rán og knúsar hana vel og lengi þegar tækifæri gefst. Auðvitað kraumar smá afbrýðssemi af og til undir en ekkert sem er óeðlilegt. Elva passar að vera með honum svo hann sé strákurinn hennar líka.

En síðustu vikur hafa því miður verið veikindavikur, fyrst var ælupest í heila viku og síðan þá hafa verið kvef vikur. En maður getur nú lítið kvartað þegar maður les sögur af börnum sem er langveik, það setur hlutina í rétt samhengi.

Við erum allavega á lífi og það gengur ágætlega, Úlfur er að fara að föndra á morgun í leikskólanum með móður sinni.

Skrifað 24.11.2006 kl. 8:52 af Stígi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

3.11.2006

Ælupest :(

Það hlaut að koma að því... Úlfur fékk núna í fyrsta skipti á ævinni ælupest.

Og það var heldur betur ælupest - prófið 25 ælur á innan við 10 klukkustundum.

Við notuðum öll okkar handklæði til að halda rúminu okkar þurru.


En þetta er allt í rétt átt núna, hitinn farinn og Úlfur farinn að æla minna.

Minnum á afmælið hans Úlfs næstkomandi mánudag þá er hann 2 ára.

Veislan verður svo 12.nóv, auglýst betur síðar.

Skrifað 3.11.2006 kl. 22:01 af Stígi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

23.8.2006

Leikskólagaur

Úlfur er nú byrjaður á leikskóla, er í aðlögun. Mamma hans fór með honum fyrstu dagana og hélt í hendina á honum meðan erfiðasta tímabilið var.

En núna er hann búinn að aðlaga sig að miklu leyti, fór í dag að sofa með öllum krökkunum, borðaði með þeim og söng líka með þeim.

Hann fílar sig mjög vel þarna og kann vel við krakkana sem og fóstrurnar sem eru mjög fínar. Hann spyr nú samt um hana Jóu sína af og til :) (eðlilega). En allavega gott að hann er í góðum höndum.

Svo er hann hættur að fá pela á nóttunni og það virkar mjög vel, því hann borðar svona 50% meira en áður á daginn ( sem er alveg ágætt ).

Við bíðum annars spennt eftir því að fá nýja barnið í hendurnar og munum "mblogga" hérna á þessari síðu þegar það gerist. Stay tuned.

Skrifað 23.8.2006 kl. 15:32 af Stígi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.8.2006

Úlfur í sumarfríi með foreldrum sínum

Íþróttaúlfurinn
Nú er Úlfur kominn í sumarfrí og byrjar ekki á leikskóla fyrr en 16.ágúst . Við hvetjum fólk til að kíkja á okkur í heimsókn - bara láta okkur vita fyrst.

Úlfur tók sinn fyrsta "konnís" að hætti íþróttaálfsins um daginn, alveg sjálfur. Svo fórum við í sund í dag öll saman og Úlfur flaut alveg í 1 mínútu á kútunum sjálfur (náði jafnvægi).


Jóa dagmamma og Úlfur (hálf freðinn þarna greyið)
Vefsíðan hennar er http://www.barnaland.is/barn/23817

Hann byrjar svo á leikskóla 16.ágúst, það var súrsætt að hætta hjá henni Jóu dagmömmu en Úlfur dýrkar hana og dóttur hennar Stefaníu - ekki furða því þær hafa verið rosalega góðar við hann. Ef ykkur vantar dagmömmu þá mælum við hiklaust með henni.

Guðna og Júlíönu synir komu í heimsókn til Íslands um daginn og kíktu með okkur í fjölskyldu og húsdýragarðinn, þar var mikið fjör og gaman að sjá hvað þeir dafna allir vel.

Barn í bumbunni
Elvu gengur vel í óléttunni og er ein af fáum konum í heiminum sem grennist þegar hún gengur með barn. Engin bjúgur hefur enn myndast og hún er komin rúmar 36 vikur á leið.

Fyrirvaraverki eru þó byrjaðir að gera vart við sig og öllum líffærum hefur verið ýtt á undarlega staði. Þetta gerir það að verkum að hún er sísvöng en getur einungis borðað litla skammta af fæðu í einu. Hún er þó ótrúlega spræk og oft sprækari en ég, Úlfur er þó ávallt sprækastur af okkur þremur og það er ótrúlega orka í honum.

Pabbi gamli
Mér gengur svo ágætlega sjálfum fyrir utan endalaus smá heilsuvandamál - ef það er ekki eitt, þá er það annað. Gengur þó vel að léttast og hef náð 4 kílóum á 1,5 mánuðum. Verð í sumarfríi frá 4 - 17 ágúst og svo er það bara barneignarfrí frá því að barnið fæðist.

Skrifað 7.8.2006 kl. 23:29 af Stígi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

12.6.2006

Nýjar myndir og fréttir

Í fyrsta lagi hvetjum við fólk til að skoða myndirnar sem við vorum að setja inn á síðuna.

Skoða hér.

 

Fréttir og annað

Úlfur dafnar vel og er alltaf að verða ákveðnari og ákveðnari - hann hefur líka tekið upp þann ósið af föður sínum að horfa á sjónvarpið mikið. Í morgun t.d. vaknaði hann kl 06:00 til að fara að horfa á mýsnar...

Hann er byrjaður að setja orð saman í setningar, "kallinn í bílnum" og "lall í afa bíl". Hann þykist einnig stjórna foreldrum sínum "nei mamma, nei pabbi".  Við höfum svona hálf vanið hann á það að sofa í sínu eigin rúmi, hann endar oftast í rúminu okkar en hann getur vel sofnað einn í rúminu sínu.

Fórum með hann í húsdýragarðinn í gær og það gekk bara mjög vel, hann var hálf hræddur fyrst en svo var þetta bara gaman - fór að snerta dýrin og tala við þau - hann er mun hugrakkari en ég allavega.

Svo er planið á næstu mánuðum að venja hann ennfremur á að sofa í sínu eigin rúmi - og einnig að venja hann af því að drekka pela á nóttunni.

Endilega látið heyra í ykkur hérna í gestabókinni og í athugasemdunum.

Skrifað 12.6.2006 kl. 9:13 af Stígi

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.5.2006

Leikskóli... og fréttir

Þá er það ákveðið. Úlfur byrjar í leikskóla í ágúst. Það verður eflaust eflaust erfitt að kveðja Jóu dagmömmu og krakkana, en svona gengur þetta bara...
Gott að frétta af hinum smáa (en knáa) Úlfi, orðaforðinn fjölgar daglega og fimleikaæfingarnar verða sí erfiðari sem hann tekur sér fyrir hendur.
Hann er ekkert hræddur við að detta, hann kann að opna eldavélar, klósett og sjampóbrúsa.
Nú á hann að fara að sofa einn í sínu rúmi í sínu herbergi og fellur það í mínar hendur að hjálpa honum að aðlagast því (ekki auðvelt).
Viljum óska Ingu Maríu frænku innilega til hamingju með litla krílið sitt en það var að sögn 49 cm og 12 merkur og var stúlkukyns.

Skrifað 20.5.2006 kl. 22:59 af Stígi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

26.4.2006

Sónarmyndir af systkyninu

Skrifað 26.4.2006 kl. 23:44 af Stígi

Bein slóð á færslu

2 álit. Bættu við áliti! | Skoða skrifuð álit

20.4.2006

Páskamyndir

Jæja, þá eru komnar páskamyndir á myndasíðunni.

Skoða myndir

Skrifað 20.4.2006 kl. 12:43 af Stígur

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.3.2006

6 spor...

Skoða nánar

25.2.2006

Vikulegar fréttir, febrúar númer 2

Skoða nánar

14.2.2006

Nýtt ár, er orðinn "dór"

Skoða nánar

6.11.2005

1 árs

Skoða nánar

17.10.2005

Úlfur alveg að verða 1 árs, byrjaður að labba

Skoða nánar

29.9.2005

Úlfur að verða 11 mánaða

Skoða nánar

29.8.2005

Myndir úr sumarfríi

Skoða nánar

27.7.2005

Krummi er 1 árs...

Skoða nánar

13.7.2005

Pabbi bara einn heima

Skoða nánar

9.7.2005

Úlfur orðinn 8 mánaða

Skoða nánar

21.6.2005

Kókómjólk !

Skoða nánar

7.6.2005

7 mánaða gaur

Skoða nánar

15.5.2005

6 mánaða

Skoða nánar

7.4.2005

5 mánaða

Skoða nánar

13.3.2005

4 mánaða tanni

Skoða nánar

3.3.2005

4 mánaða

Skoða nánar

4.2.2005

3 mánaða gaur

Skoða nánar

8.1.2005

Gleðilegt nýtt ár

Skoða nánar

16.12.2004

Loksins loksins

Skoða nánar

15.12.2004

6 vikna skoðunin

Skoða nánar

1.12.2004

Fyrsta brosið

Skoða nánar

23.11.2004

Gengur vel með Úlf

Skoða nánar

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 57
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 83
Gestir í gær: 17
Samtals flettingar: 110857
Samtals gestir: 39859
Tölur uppfærðar: 6.1.2009 06:50:49