Eldra efni
Um mig
Nafn:
Úlfur StígssonFarsími:
Fæ ekki svoleiðis straxTölvupóstfang:
ulfur@ulfur.comAfmælisdagur:
6. Nóvember 2004Staðsetning:
ReykjavíkFaðir:
Stígur ÞórhallssonMóðir:
Elva HauksdóttirUm:
Ákveðinn stubbur sem hleypur á ljóshraða.Tenglar
- Fjölskylda, vinir
- Adam Freyr Aronsson
- Elva mamma
- Elvu og Hafðliðason
- Embla hans Jóns Inga
- Frosti Frændi
- Haukur afi
- Jóa dagmamma
- Litlu hennar Henný
- Magnús Logi Samsonarson
- María Rún hennar Grétu
- Prinsessan hans Kjartans
- Sebastían Einarsson
- Silja frænka
- Stígur pabbi
- Styrmir Hrafn Karlsson
- Systir mín
- Tómas Nói Hauksson
- Twins
- Urður hans Árna
- Vala Aronsdóttir
- Valur Ólason
Blogg
24.11.2006
2 ára ofurgutti
Úlfur orðinn 2 ára gaur, hann dafnar vel og það hefur gengið mjög vel með hann að flestu leiti. Við héldum barnaafmæli fyrir strákinn síðustu helgi og gekk það mjög vel (sjá myndir í myndaalbúm), hann er nánast altalandi núna - les heilu bækurnar fyrir mig (ekki textann, veit bara hvað þær eru um).
Honum gengur rosalega vel á leikskólanum og hefur eignast marga góða vini þar. Hef heyrt að hann sé viljasterkur og hafi nokkrum sinnum þurft að fara í óþekktarhornið :)
Úlfur kann vel við litlu systur sína Rán og knúsar hana vel og lengi þegar tækifæri gefst. Auðvitað kraumar smá afbrýðssemi af og til undir en ekkert sem er óeðlilegt. Elva passar að vera með honum svo hann sé strákurinn hennar líka.
En síðustu vikur hafa því miður verið veikindavikur, fyrst var ælupest í heila viku og síðan þá hafa verið kvef vikur. En maður getur nú lítið kvartað þegar maður les sögur af börnum sem er langveik, það setur hlutina í rétt samhengi.
Við erum allavega á lífi og það gengur ágætlega, Úlfur er að fara að föndra á morgun í leikskólanum með móður sinni.
8.11.2006
Babú,babú, frà mömmu

Babú,babú, frà mömmu
8.11.2006
Gjöf frá rán

Gjöf frá rán
6.11.2006
2 ára !
Litli afmælisguttinn er ennþá hálfslappur en er samt alveg með það á hreinu að hann á afmæli. Byrjaði daginn á að heimta blöðru og köku ! Svo var sunginn afmælissöngurinn og það var MJÖG vinsælt og hann vildi láta syngja aftur og aftur. Svo fékk hann fullt af pökkum frá Jónu ömmu og var alsæll með þetta allt saman. Við höfum ekki enn komist í að kaupa gjöf handa greyinu, erum bara búin að vera svo hrikalega lasin. Fyrst Úlfur, svo bættust mamma og Rán við og svo pabbi í gærkvöldi. Þetta er ein sú allra viðbjóðslegasta pest sem ég hef kynnst. Maður er bara alveg ónýtur. Sem betur fer eigum við góða að til að hjálpa okkur þegar svona stendur á.
Við vonumst til að geta haldið upp á afmælið á sunnudaginn ef að heilsan leyfir en erum samt varla byrjuð að bjóða. Þið kannski hafið þetta svona bak við eyrað og svo verðum við í bandi :)
3.11.2006
Ælupest :(
Og það var heldur betur ælupest - prófið 25 ælur á innan við 10 klukkustundum.
Við notuðum öll okkar handklæði til að halda rúminu okkar þurru.
En þetta er allt í rétt átt núna, hitinn farinn og Úlfur farinn að æla minna.
Minnum á afmælið hans Úlfs næstkomandi mánudag þá er hann 2 ára.
Veislan verður svo 12.nóv, auglýst betur síðar.
1.11.2006
Úlfur í Smáralind


