www.ulfur.com - Úlfur Stígsson

Heimasíða Úlfs Stígssonar á netinu, uppfærð reglulega.

Um mig

Nafn:

Úlfur Stígsson

Farsími:

Fæ ekki svoleiðis strax

Afmælisdagur:

6. Nóvember 2004

Staðsetning:

Reykjavík

Faðir:

Stígur Þórhallsson

Móðir:

Elva Hauksdóttir

Um:

Ákveðinn stubbur sem hleypur á ljóshraða.

Tenglar

Foreldrar

Foreldrar

Elva og Stígur kynntust 23. október 1992 í gegnum frænku Stígs sem er vinkona Elvu. Þau byrjuðu að vera saman 6. apríl 1995 og hafa verið saman síðan.

Móðir: Elva Rós Hauksdóttir

Faðir: Stígur Vilberg Þórhallsson

ElvaOgUlfur-jan-2005.jpg

Fæðingardagur: 4. október 1979, Reykjavík

Um Elvu:
Elva fæddist í Reykjavík árið 1979, átti fyrst heima í Mývatnssveit, svo í Hveragerði, Kópavogi og endaði loks í Breiðholtinu. Þar gekk hún í Fellaskóla og eftir það lá leiðin í MR (með smá viðkomu í FB) Hún hefði átt að klára MR í vor (2004) en það gekk ekki þar sem hún gat ekki mætt í prófin fyrir ógleði og uppköstum. Kláraði MR með stæl vorið 2005.

Vefsíða:
www.123.is/elva/ er vefsetur Elvu

 

StigurOgUlfur-Aug2005.jpg

Fæðingardagur: 6. október 1980, Reykjavík

Um Stíg:
Stígur fæddist í Reykjavík árið 1980, hann var lengi vel staðsettur í Laugardalnum og gekk í Laugarnesskóla og Laugalækjarskóla. En síðan 1998 hefur Stígur verið breiðhyltingur og kann því vel. Eftir grunnskóla fór hann í Verzlunarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan árið 2000. Hann er nú að rembast við að klára B.SC. í tölvunarfræðiskori Háskóla Íslands og er rétt svo hálfnaður.

Vefsíða:
www.stigur.com er vefsetur hans.

Áhugamál:
Fjölskyldan og vinir, körfubolti, tölvustúss og kvikmyndir.

Flettingar í dag: 77
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 118
Gestir í gær: 30
Samtals flettingar: 104991
Samtals gestir: 38749
Tölur uppfærðar: 19.11.2008 22:27:53