www.ulfur.com - Úlfur Stígsson

Heimasíða Úlfs Stígssonar á netinu, uppfærð reglulega.

Um mig

Nafn:

Úlfur Stígsson

Farsími:

Fæ ekki svoleiðis strax

Afmælisdagur:

6. Nóvember 2004

Staðsetning:

Reykjavík

Faðir:

Stígur Þórhallsson

Móðir:

Elva Hauksdóttir

Um:

Ákveðinn stubbur sem hleypur á ljóshraða.

Tenglar

Gullmolar

Júní 2006 / Júlí 2006

Úlfur segir "koppur, koppur" og mamma tekur til koppinn - hann sest svo á koppinn í fötunum og prumpar allsvakalega, og stendur svo upp og fer.

Úlfur heyrir Jóu dagmömmu segja "Oh my god" og byrjar að segja "ómæægodd" alveg viðstöðulaust.

Maí 2006

Úlfur vildi refsa Hönnu ömmu sinni aðeins og gekk því að stofuborðinu og tók gullitaðan dúk og dró hann af honum, amman hélt að hann ætlaði bara að leika sér með hann og var því ekkert að trufla hann. Hann gekk svo með hann að klósettinu og opnaði það, og hóf að dífa honum ofan í...

Stígur var að reyna að svæfa Úlf með Elvu og hóf að syngja, Elvu fannst þetta ekki mjög fagur söngur og gerði svona "ohh" hljóð, þá heyrðist í litla manninum "dígur ekki syngja".

Mars 2006

Úlfur og pabbi fóru saman í bað í fyrsta skipti í langan tíma. Eitthvað fannst Úlfi þetta öðruvísi en það átti að vera, benti á typpið á pabba sínum og spurði : ,,Kúka?"

Nýjasta uppátækið er að kalla pabba sinn Stíg.
Mamma og Úlfur fóru inn til að vekja pabba einn morguninn og mamma lét Úlf um að vekja. Úlfur lagði báðar hendurnar fallega um vangann á pabba og sagði svo heldur harkalega og hátt : ,,Dígur!"

Pabbi og mamma voru að svæfa Úlf þegar dyrabjallan hringdi og pabbi fór fram að tala við mann. Úlfur var ósáttur við þetta og vildi hafa okkur bæði og fór að kalla. Fyrst sagði hann pabbi en þegar það dugði ekki og pabbi hélt áfram að tala fór hann að kalla á "Díg". Ekki kom pabbi og þá missti Úlfur þolinmæðina og kallaði hátt: ,, Dígur núna !" Við höfðum aldrei heyrt hann segja núna áður en hann hafði greinilega heyrt það einhvers staðar og skilið samhengið.

Febrúar 2006
Mamma er að svæfa Úlf og segir: Elsku LITLI strákurinn hennar mömmu sinnar. Úlfur sest upp með þjósti og segir: Dór, Dór ! Hann er nefnilega stór en ekki lítill.

Mamma og pabbi eru rétt nýbúin að leggja Úlf í rúmið til að svæfa hann þá breytist andardrátturinn og hann fer að hrjóta. M & p fara að kíkja á hann og eru svolítið hissa enda tekur þetta venjulega lengri tíma. Þá sest hann upp og hlær alveg eins og púki. Hann vissi að við vorum að bíða eftir þessu og fattaði að það væri fyndið að þykjast. Góður húmor hjá 15 mánaða !

Pabbi var að kenna Úlfi að svara spurningunni: Hvað heitirðu? Í fyrstu skiptin svaraði hann rétt og sagði Úvur en allt í einu fór hann að breyta út af og svaraði Túnda. Það þýðir Tunglið á úlfsku og þetta heldur hann sig við núna og segist alltaf heita Túnda en svo þegar við förum að hlæja þá segir hann neiii. (Hann veit alveg hvað tunglið er en af hverju hann valdi það orð af öllum þeim sem hann kann er óskiljanlegt)

Flettingar í dag: 77
Gestir í dag: 22
Flettingar í gær: 118
Gestir í gær: 30
Samtals flettingar: 104991
Samtals gestir: 38749
Tölur uppfærðar: 19.11.2008 22:27:53